Jón Sigmundsson fæddist 9. maí 1890 í Gunnhildargerði og dó 14. október sama ár í Gunnhildargerði einungis fimm mánaða gamall.
Í tilefni sonarmissisins orti Björn Hjörleifsson til þeirra hjóna:
Til Sigmundar og Guðrúnar í Gunnhildargerði
Nú brenna tár á ykkar hreldu hvörmum,
nú hefir dauðinn tekið ykkar son,
er áður hvíldi á ykkar beggja örmum
og ykkar var hin bezta lífsins von.
Sorgbitinn faðir, sjá hann er dáinn,
syrgjandi móðir, feldu tár við náinn.
Sof þú nú blessað barn í grafar húmi
blundi værum langa dauðans nótt,
þó að sé kalt í þínu þröngva rúmi,
þér mun sofnast undir blítt og rótt.
En sál þín á gott í Jesú ástarörmum,
með eigin hendi þerrar hann tár af hvörmum.
Björn Hjörleifsson